Ólífutré í salnum hjá Róót

Um okkur

Gut Happy

Við erum róótföst í þeirri sannfæringu að góð líðan byggist upp með tímanum. Ekki með skyndilausnum, heldur jafnvægi, fjölbreytni, góðu hráefni og mat sem er unninn af alúð.

Rætur sem skipta máli

Innblástur okkar kemur úr matarhefðum víðs vegar að úr heiminum. Þrátt fyrir ólíka menningu og ólíkar matarhefðir eiga þær margt sameiginlegt: fjölbreytt úrval plantna, árstíðabundið hráefni, gerjuð matvæli og virðingu fyrir þeim tíma sem góður matur þarf. Við höfum leitað aftur til rótanna, skoðað hvernig kynslóðir á undan okkur nærðust og hvað þessar hefðir geta kennt okkur í dag.

Róótföst trú

Í dag bendir vaxandi þekking til þess að fjölbreytt mataræði og heilbrigt þarmaörverusamfélag geti haft áhrif langt út fyrir meltinguna. Þarmarnir eiga í stöðugum samskiptum við bæði heilann og líkamann og minna okkur á að allt í líkamanum tengist. Þess vegna teljum við að það sem við borðum skipti máli, ekki aðeins fyrir bragðið heldur fyrir líðan okkar í heild.

Iðrakennd matargerð

Þess vegna köllum við það sem við gerum iðrakennda matargerð. Við sameinum aldagamla visku og nútímaþekkingu til að skapa mat sem er heiðarlegur, bragðgóður og nærandi. Hvort sem það er máltíð, brauð eða vara sem fylgir þér heim er markmið okkar alltaf hið sama: að gera fjölbreytt og vandað val, einfalt og aðgengilegt.

Það sem vex hægt

Við trúum ekki á fullkomnun. Við trúum á litlar, góðar ákvarðanir sem, með tímanum, geta skapað betri forsendur fyrir góða líðan.

Gut HappySkoða matseðil

Salurinn

Salurinn okkar er líka til leigu

Salurinn í Turninum við Höfðatorg er rúmgóður og bjartur. Við leigjum hann út fyrir viðburði, fundi og einkasamkvæmi og tökum vel á móti hópum. Hafðu samband og við finnum réttu umgjörðina.

Hafðu samband
RÓÓTGUTHAPPY

Við erum róótföst í þeirri sannfæringu að góð líðan byggist upp með tímanum.

Þjónusta
MatseðillUm okkur
Hafa Samband
Turninn, Katrínartún 2, 105 Reykjavík
root@rootfood.is
Mán–Fös: 11–14
© 2026 Róót. Öll réttindi áskilin.
Skilmálar